Prófíll

  • Nafn: Tara Óðinsdóttir
  • Netfang: taraodins@gmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Nýbúin að eignast lítnn Mola úr gulli..=gullmola ;)
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð ;)
  • Um mig: Ég á án efa fallegasta barn í heimi, ég og Aðalsteinn ástin mín erum án efa flinkust í heimi að búa til barn!
  • Annað: nee held ekki..

Auglýsing

Setning vikunnar

"Maður á sko að tyggja svona hrísgrjón"

Klukkan

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

4 mánaða

18. maí 2007 klukkan 20:12
Jæja við fórum í ungbarnasundið í dag, lillinn minn fór nú reyndar ekki í kaf (vegna hræðslu) en ja hann var nú aðeins skárri.. en gvöð minn góður öskrin í einu barni þegar við vorum komin hérna heim! ég vissi ekki hvað ég átti að gera hann bara öskraði og öskraði.. hann reyndar er alltaf mjög órólegur eftir sund :( en núna sefur hann voða vært, alger engill =)
Núna eru 12 eða 13 dagar þangað til kallinn kemur af sjónum! hrikaleg spenna! þetta virðist alltaf vera jafn ööömurlegt þegar hann fer! Skiljanlega! en þetta venst aldrei:( En við erum að hugga okkur við að þetta er ekki að eilífu ! bara tímabundin staða! híhí :)
Svo er ég að fara að keyra mína fyrstu ferð til Reykjavíkur núna 30 eða 31.. *gúlp* tek að sjálfsögðu litla múmínsnáðann minn með og svo ætla Jónína og Óli litli líka svo að við verðum ekki alein á förnum vegi..
Á miðvikudaginn 16 mai varð snáðinn minn 4 mánaða.. ég bara spyr hvert fór tíminn eiginlega? þetta er ótrúlegt! hann er orðinn svo stór og mikill krakki! farinn að leika sér svo mikið með dót, farinn að svona klípa í andlitið á manni og borða mann og RÍFA Í HÁR! jájá þetta þroskast víst! en þetta er búið að vera alveg yndislegir 4 mánuðir! þetta er yndislegasta staða sem ég hef verið í á minni ævi! MAMMA! ég hlakka bara til að gera þetta allt aftur! :) Verður kannski erfiðara að fá hann Aðalstein til að samþykkja annað í bráð :) hehe en ef hann elskar mig eins og hann segir þá kvartar hann ekki við öðru kríli :) Jæja teið mitt kallar, er að verða kallt

Bless í bili

Blogg fyrir Lenu

09. maí 2007 klukkan 14:38
Obbossí verð ég að segja, gleymi alltaf að blogga, þið verðið bara að afsaka :) Er að horfa á friends.. fjúff ég elska þessa þætti, er búin að horfa á þá alla billjón sinnum en fæ aldrei ógeð! þið vitið að það er sagt að þegar konur verða ófrískar þá fá þær alltaf æði í eitthvað (oftast mat) en ég var öðruvísi og fékk æði fyrir Friends! ég þurfti að horfa á þá svona max 2 á dag.. annars var ég með bömmer yfir að hafa ekki horft á þá.. spes I know! Svalur
Ég sagði ykkur aldrei að ég og Trausti erum byrjuð í ungbarnasundi.. já Trausti minn er eina barnið sem virkilega grætur og kvartar þegar hann er settur í kaf! Samt finnst honum allt hitt mjög skemmtilegt, svo kemur að 1,2,3 og blása og barnið tjúllast! :(
Við erum búin að setja íbúðina okkar á sölu, hún ætti að vera komin inn á netið núna, ég á nú örugglega eftir að sakna hennar soldið :( =)
Jæja Lena nú er komið blogg fyrir þig.. :) Elska þig :*

Gleðilegt sumar

19. apríl 2007 klukkan 10:38
Sæl veriði. Gleðilegt sumar allir :) Það er nú reyndar ekki svo gott veður hér á eyrinni, kannski frekar kalt í veðri og grátt en þó ekki snjókoma eða önnur leiðindi. Það er svo gaman að fylgjast með litla stráknum mínum leika sér, hann á fisher price stól og það eru tvö leikföng á honum, ein græn randafluga og gulur fugl, svo er tónlist og hann heldur að grlna flugan sé að tala við sig, hlær til hennar og hjalar þvílíkt..alger mús :) Núna er kallinn í landi og við öll á eyrinni góðu að hafa það notalegt á hótel mama :P Það á að velja sæluhelgarlagið í kvöld og það ætla ég sko að fara að horfa á ÓJÁ! ég kemst alltaf í sæluhelgargírinn við valið á laginu, ógissla fúlt svo að það er bara apríl og ótrúla langt í sæluna :( En smá forskot :) Held það séu svo vöfflur í dag vonandi mmmmmmmhhhhm.
Við förum væntanlega að eignast bráðum litla frænku! En hún Ása frænka mín er lögst inn á spítala komin 36 vikur, vonandi nær hún samt 37 vikum allavegana. Hlakka til að sjá litlu krúsídúlluna :) Jæja kúturinn minn er orðinn soldið þyrstur alveg kominn hálftími síðan hann drakk (hann er svona hangangi á manni allan daginn) haha :* svo drekkur hann alltaf eins og hann hafi ekki smakkað í 6 tíma eða svo! jæja bless

Páskar í rvk

25. mars 2007 klukkan 20:17
Mig langar svo að leggjast í dvala í smástund! ég get svo svarið það að ég er endalaust þreytt! ég fæ þann heiður að vakna á næturna að fóðra barnið mitt.. eins yndislegur og hann er þá væri ég meira en til í að fá allavegana 8 tíma streit svefn.. ! þá kannski kemst ég í gegnum daginn án þess að geispa á mínútu fresti! kannski er tímabært að fara að hreyfa sig meira? Getur verið að hreyfingarleysi spili inn í þreytuna mína..... :) Allavegana...Trausti Egill hefur þyngst um kíló á 3 vikum Hissa hann er alger bolti! yndislegt..!  svo er það næst á dagskrá sem ég veit um er að við erum að fara heim í kotið okkar á sunnudaginn næstkomandi! Maðurinn er að koma í land 3.apríl Koss  páskarnir í rvk.. hvað gerir maður..?  jæja

bless

æj og ó

15. mars 2007 klukkan 13:26
Góann dainn.. það er svo gott veður! mér langar út.. en lillimann er með smá vott af kvefi :S jæja.. sko ég var að kvarta yfir skjá einum um daginn að það væri ekkert á daginn í tv.. en núna er ég komin vestur og hef hérna stöð 2 bíó og stöð 2.. en mér þykir þær bara ekkert skárri en skjár einn.. ég get nú samt horft á nágranna en svo kemur valentína.. eruði að grínast! þetta er einn leiðinlegasti og lélegasti þáttur í heimi! ég get svo svarið það.. hann er svo fúll ! oj.. :)
já og já.. pabbi kom frá Boston í gær.. við fengum gjöf :D ég, Tinna og Vera fengum svona body splash .. Romantic Wish :D það er sjúklega góð lykt, svo fengu Óðinn Freyr og Trausti Egill hettupeysur! það stendur GAP á Óðins en Baby Gap á Trausta :)
jæja nóg af þessu bulli..
bleeess

Jæja

09. mars 2007 klukkan 20:29
ég og Trausti Egill erum komin vestur í sæluna, ekkert smá næs! Hann er bara búinn að brosa síðan við komum hingað, algert æði! og skírnin var á sunnudaginn og heppnaðist mjööög vel! en við sváfum ekki vel fyrir hana, vorum pínu stressuð en viðurkenndum það samt ekki :)  en jájá við setjum inn fréttir seinna :)

ble

Febrúar að klárast

27. febrúar 2007 klukkan 14:49
Febrúar mánuður að klárast.. það er aldeilis.. Mamma mín á afmæli á morgun þann 28 febrúar.. Tinna skírnarmotta kemur á morgun eða hinn! mamma,pabbi og vera koma á föstudag! og Magga mín kemur á föstudag líka.. eða fimmtudag.. man ekki alveg :( heh.. ekki skamma mig magga fyrir að muna ekki alveg daginn.. ;) elska þig :* Örfirisey kemur á föstudagsmorgun í land, Þerney kemur á fimmtudagsmorgun! ég er að segja ykkur það að það eru bara ALLIR að koma til okkar á sama tíma!!:):):)
Já svo er það bara skírnin á sunnudag.. úff úff er orðin smá stressuð og spennt .. :) þetta á eftir að verða flott og fínt :) Það er kominn listi með þeim sem koma, búið að panta smá mat og svo á bara eftir að kaupa skírnarfötin, já ég ætla ekki að skíra í skírnarkjól.. mér þykir flott að hafa bara föt :) En það er náttúrulega bara mín skoðun..
Ég og minn heittheittheittheittheittelskaði ætlum að reyna að fara eitthvað 2 ein á laugardagskvöld.. út að borða eða í bíó eða eitthvað skemmtilegt.. því hann er að fara á sjó á þriðjudaginn :( Okkur þykir það nú ekkert of spes neitt.. !!! En við ætlum bara að hafa það kreisí notó fyrir vestan í sveitasælunni!!:D:D Við fórum með Trausta í 6 vikna skoðun í morgun.. skrítið að það eru liðnar 6 vikur í dag síðan hann fæddist.. eða reyndar í kvöld klukkan 23:55 :)  en skrítið að líta til baka og þúst það var ekki komið barn fyrir akkúrat 6 vikum.. fljótt að líða!! en yndislegt allt saman!:) En já ég var að segja ykkur frá skoðuninni.. hann er bara að verða stór strákur..! orðinn 4,5 kíló og 55 cm.. en það er nú soldiðmikið því þið vitið að hann var nú ekki neitt voðalega stór þessi drengur þegar hann fæddist :) enda fyrir tímann en hann braggast alveg ótrúlega vel og þær eru alveg geggjað ánægðar með hann :-)
En svo við tölum nú um allt annað.. hvað er málið með Vörutorg á skjá einum.. afhverju er ekki hægt að hafa eitthvað annað á daginn.. ég sit hérna heima alla og aldrei er neitt í sjónvarpinu! við erum bara með skjá einn og sirkus.. og jújú stöð 1.. en ekki stöð 2.. og þetta rusl.. og heeeeelví... dvd spilarinn er bilaður..! en ekki vídjóið..en þá er eitt annað að.. við eigum eina vídjóspólu.. POP SCHOOL! haha :) þó það sé góð afþreying þá er ekki hægt að horfa endalaust á það!:) hef líka séð hana svo of oft! var alltaf að horfa á hana þegar ég var lítil:) En ég mundi semsagt vilja að það væru sýndar bíómyndir á skjá einum á daginn! ekki þessi endalausu myndbönd og VÖRUTORG!! æji úff hvað maður á eitthvað erfitt ;)
jæja bless

Madonna

24. febrúar 2007 klukkan 20:49
Jæja Laugardagskvöld og ég sit ein með Trausta Egil minn í fanginu! krúsíkrús það er svo gott að knúsa hann, gæti gert það endalaust!!:):) Hann er búinn að stækka svo mikið.. en samt er hann alger hnoðri en samt svo stór hnoðri eikkað :) en eimmitt..
í gær fórum við lille familíen til Höllu og co .. ætluðum að þrífa bílinn.. en það gleymdist náttúrulega.. við bökuðum pítsur og horfðum á X factor.. eða hafa það rétt þá bökuðu Aðalsteinn og Agata pítsurnar saman :) Svo í kvöld ætla ég að skjótast í heimsókn til Örnu Elísubet.. Gott að komast aðeins út, ég geri nú aaaaaaaaaaaaalls ekki mikið af því!!:S En hvernig er síðan orðin hjá mér? ég kann ekki mikið á þetta blogg dót sko.. en það hlýtur að koma með tímanum.. ég man samt að þegar ég var með síðuna einu sinni í fyrndinni þá gat ég sett mynd þarna efst.. banner.. eða hvort að Eyrún eða eitthver hafi gert það fyrir mig.. getur alveg verið :) Hvað er samt málið með mynda það á bloggar.is.. maður er alveg heila öld að setja inn myndir.. líka á barnaland.. þangað til það var sagt mér frá öðru forriti á barnaland.. þá var hægt að setja margar myndir inn í einu bara á no time..
Svo er það tónleikarnir með Madonnu í kvöld.. langar að sjá þá.. en ég hef nú samt aldrei verið neitt voðalega hrifin af henni neitt svona að viti.. en mér finnst lagið hennar Like A Virgin soldið gott.. og þarna lagið sem var svo vinsælt í fyrra, man nú ekkert hvað það heitir en það var líka soldið gott.. annars hef ég ekkert fylgst með henni.. en ég get bætt úr því núna á eftir.. =)
já og jæja ætla að fara að sinna barninu mínu, :P

Mætt aftur

22. febrúar 2007 klukkan 17:55
Jæja.. þetta er nú hálfkjánalegt að byrja eitthvað aftur núna að blogga.. en ég ætla nú samt að láta reyna á það.. já og vera dugleg að kommenta og halda þessu lifandi.. því eins og allir vita þá er það ekkert bara ég sem held uppi blogginu það eru líka þið með lífgandi samræðum og kommentum :) en jáhh úff ég er svona að reyna að koma þessu af stað.. kann nú ekki mikið á bloggar.is.. eruði ekki sammála með að þetta er soldið flókið kerfi?
Svo ef þið viljið komast í tengla.. bara að segja mér :) bless

07. ágúst 2006 klukkan 03:00
Bloggiblogg